A review by stinajohanns
Netið by Lilja Sigurðardóttir

3.0

Mér fannst þessi bók betri en fyrri bókin og kannski meðal annars vgna þess að í raun er ágætlega leyst úr málum. Það er talað um að þetta sé önnur bókin í þríleik en mér finnst það í raun ekki. Mér finnst þetta vera seinni bókin í tvíleik því maður þarf ekkert að halda áfram. Að auki skilst mér að þótt næsta bók sé um sömu persónur færist áherslan yfir á Öglu og að þar sé í raun um töluvert aðra hluti að ræða þótt skildir séu. Ég hef ekki þörf fyrir að halda áfram. Þessi bók stendur alveg undir sér án þess.